1. Fullt nafn? Elfa Rún Friðriksdóttir
2. Fyrirmyndin í lífinu? Ætli það séu nú ekki nokkrir sem koma þar, Mamma mín, Pabbi minn, bróðir minn og systir ;*
3. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Jahá sem hefur haft mest áhrif á mig held það sé The holy Bible
4. Hvern myndir þú mest vilja hitta? Ég mundi vilja hitta Guð held að það væri nokkuð gott, svo væri nú gaman að hitta einhverja hetju.
5. Uppáhaldsnafn (ef þú mættir velja þér annað nafn)? Jahá.. ég er bara ekki viss, mig langaði alltaf að heita eikkað annað þegar ég var lítil en er alveg agalega sátt núna.
6. Uppáhalds hlutur? Held að það sé bíllinn minn.. veit ekki hvar ég væri án hans stundum.
7. Æskudraumur? Mig langaði alltaf að vera prinsessa.
8. Hvernig er tannburstinn þinn á litinn? Hann er hvítur og blár...
9. Hvað sefurðu yfirleitt marga tíma á nóttinni? Úff það er nú missjafnt, kannski frá 4-8 tíma
10. Leiðinlegasta sem þú gerir? Án efa að TAKA TIL!!!
11. Ef þú fengir einn dag alein, hvað myndirðu gera? Ég mundi vilja fá minn fegurðarblund, vakna og fá mér ljúffengan morgunmat, fara í göngutúr á Mývatni svo í lónið þar, svo góðan kvöldmat og eyða kvöldinu við kertaljós og lestur á góðri bók.
12. Ef þú gætir skipt um starf, hvað sérðu fyrir þér að gera? Mest í heimi mundi ég vilja fara út í eitthvað sjálfboðastarf.
13. Leyniuppskrift fyrir hæsi og kvefi? Emm.. Kannski bra nóg af c-vítamíni og sítrónute.. hehe
14. Uppáhaldsmatur/uppskrift? Mamma mín gerir besta mat í öllum heiminum og ég mundi að allur kjúklingur hjá henni sé það besta.
15. Manstu eftir “mómenti” sem breytti öllu í lífi þínu? Já, ég man eftir því en það er svona dáltið private svo það kemur ekki hér..
16. Brad Pitt, Colin Farrell eða David Backham? Colin Farrel alveg pottþétt
17. Skúrar þú heima hjá þér? Neee.. kallinn minn hann fær alveg að sjá um að skúra:)
18. Hvar ætlarðu að eyða ellinni? Ég ætla að eyða ellinni einhverstaðar á Bahamaeyjum með ástinni í lífinu mínu, fara í siglingar til fjarlægra landa, dansa gömlu dansana, lesa góðar bækur og geta hugsað til baka hvað ég sé búin að eiga yndislegt líf með manninum mínum og fjölskyldunni minni J
