Prófíll

  • Nafn: Elfa Rún Friđriksdóttir
  • Netfang: elfafridriksd@hotmail.com
  • Atvinna: Móttöku á gistiheimili hjá pabbz og mömmz
  • Hjúskaparstađa: Á föstu og ţađ vel á föstu :o)

Auglýsing

Atburđarteljari

Undirsíđukubbur

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíđukubbur

Nauhh ţetta get ég.. TAKK Sara

27. október 2007 klukkan 18:30

Jæja gott fólk vegna pressu þá held ég að ég verði að blogga e-ð..

En allavega þá hefur nú e-ð gerst síðan ég bloggaði síðast...

Ég fór 2x í rafting í sumar í fyrraskiptið vorum við 13 og fórum í minni ánna sem var ekkert smá gamanJ og svo í seinna skiptið fórum við í stærri ánna en vorum bara 4 en samt sem áður sko ekkert síðra en fyrra.. Fórum með einhverju fyrirtæki að sunnan svo að það voru nánast eintómir karlmenn með okkur og viti menn við kjellurnar sem vorum 4 saman í bát duttum aldrei úr bátnum meðan hinir duttu og duttu útfyrir.. við stelpurnar vorum sko seigar... Eftir þá ferð höfðum við leigt okkur bústað og drukkum þar og djömmuðum fórum í pottinn sem var ALLTOF HEITUR en það var í lagi..

  

Ég ákvað að gefa sjálfri mér eitt ár í frí áður en ég færi í háskóla og vinna bara til að safna mér penning til að þurfa ekki að fara strax á námslán.. Það gengur þokkalega og hlakka ég ekkert smá til í að fara í háskóla..En málið er að ég virðist ekki alveg komst á niðurstöðu hvað ég vill nákvæmlega læra.. Hvað finnst ykkur að ég eigi að læra...

 

Ömmm ég er flutt í nýja íbúð ekki langt frá snægilinu samt.. en þetta urðu langir flutningar þrátt fyrir það.. Frá snægilinu heim til mömmu og pabba í langholtið í 3 vikur svo aftur hingað uppeftir í skessugilið J En það var BARA gott að koma og vera hjá mömmu og pabba smá.. Ég er alveg agalega ánægð með íbúðina og mér líður ekkert smá vel.. Við höfum það rosalega gott og erum í skýjunum yfir stærðinni J hehe

 

Svo erum við nú búin að fá okkur litla kisu.. eða hún er nú kannski ekki alveg eins lítil núna og þegar hún kom.. Hún var nú bara pínulítil þegar við fengum hana.. En núna er ég orðin alveg veik og vill endilega fá annan kött handa litlu Kíru til að leika við..

 

Svo fer nú að líða að afmælinu mínu.. Ég hef ekki hugmynd um hvað mig langar að gera í tilefni þess,, kallinn minn ætlar að gefa mér 50 þús svo mig langar bara að skella mér e-ð út til útlanda en ég veit ekki hvert og hver kemur með...:)

 

En já ég held að þetta sé orðið gott í bili nenni ekki að skrifa meira hehe en það verður vonandi ekki eins löng bið næstJJ


Svo hérna í lokin koma svo nokkrar myndir eftir sumarið svona sem ég tók snökkt saman:  

Hérna er litla Kíra tiltölulega nýkomin og vildi bra fá mjólk! ! 


Svo er hún hérna orðin dáltið stærri... OHH SÆTASTI KÖTTUR 


Hér er ein stúdentsmynd alveg ekki sú besta en hey ég nennti ekki að leyta svo að þið sjáið aðeins hversu glæsileg ég var .. hehe
 


Svo síðast en ekki síst nokkrar myndir af mér og Guðlaugu þegar við fórum í smá dagsferðarskemmtun..


Ég að reyna kenna Guðlaugu að maður á ekki að henda sorpi í sjóinn.. En hún skildi það náttla ekki .. kemur kannski næst…
 




Það var e-ð rosa mál þarna í einu herberginu var eitthvað dýr sem vildi bara borða okkur ! ! En við rétt sluppum.. Guðlaug var haulaus það sem eftir var ferðarinnar og ég handarlaus, en það er í lagi það hefði getað farið verr
JJ


Við dáltið svalar á leið heim úr Lóninu 
J
 


En stoppuðum eitt loka stopp fyrst samt til að skoða fallega fossinn
JJ
 

Jæja ég reyni svo að fara setja myndirnar inn allar sem ég er með..

Þanngað til næst I’m out….
Flott blogg og sætar myndir. Sérstaklega með húfuna hvítu þú ert glæsileg (vildi að ég hefði getað komist).
En hvað varstu að borða Elfa rún? á myndinni þar sem þið eruð svalar ertu með GRÆNA tungu, varstu að borða gras enn einu sinni ?
Sakna þín snúll. kiss kiss og knús.
Kv sörylingurinn þinn.
#1
27. október 2007 klukkan 18:57
HÆÆÆÆÆÆ,
já ég vildi líka að þú hefðir komist á þennan stóra áfanga sem tók smá tíma að ná heheh... betra er seint en aldrei..
Hehe já Sara eftir að þú fluttir get ég ekki hamið mig í grasáti þú passaðir það alltaf... :):) Hehe en já borðaði ís... heh ég skoðaði myndirnar svo litlar og sá þetta ekki fyrr en ég var búin að setja hana á bloggið.. bara meira cool :O)
En sakna þín líka litla músin mín :) múahhhh :*
#2
27. október 2007 klukkan 19:03
Dugleg Elfa ;) Kisan þín er ekkert smá sæt! ég er nú ekki mikið fyrir ketti... eennnn... þín er sæt!
Mér finnst þú ættir að fara í bíófræði í háskólanum, taka mig og Söru með þér ;) við myndum sko allar fá tíu ;)
#3
28. október 2007 klukkan 19:33
Hahaha já Nanna við mundum allar fá 10 það er alveg bókað ; )
#4
29. október 2007 klukkan 21:30
hæhæ skvís...ætlaði nú bara að kvitta fyrir mig í dag, var á rúntinum um bloggheiminn og rakst á þessa massasíðu;)
#5
30. nóvember 2007 klukkan 15:03
ég er alveg til í annað blogg frá þér ;) svona fyrir jólin !
#6
01. desember 2007 klukkan 20:10
vá þetta er geggjað,ég er búinn að finna bloggara sem er latari en ég að blogga!! JÍÍÍÍHAAAAAAAAAAA
#7
14. janúar 2008 klukkan 21:23

Skrifa athugasemd

Atburđarteljari

Könnun

Á ađ fara til útlanda í sumar?

Klukkan

Leit