Prófíll

  • Nafn: Elfa Rún Friðriksdóttir
  • Netfang: elfafridriksd@hotmail.com
  • Atvinna: Móttöku á gistiheimili hjá pabbz og mömmz
  • Hjúskaparstaða: Á föstu og það vel á föstu :o)

Auglýsing

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

Já það er sko mikið búið að gerast...:)

13. júní 2007 klukkan 12:53

Jæja ég er að hugsa um að blogga eilítið J

En já hvar á ég að byrja, ú já útskriftin mín.. já ég hef sjaldan skemmt mér eins vel og laugardaginn 26. maí.. Mér hefur líka aldrei fundist eins gaman að vera með eitthvað fat á höfðinu :o)

En já systir mín kom til mín ásamt fjölskyldu hennar í tilefni dagsins. Sem var æðislegt!

Takk allir fyrir mig :o) þið vinir mínir hafið miklu betri smekk en mér gat grunað.. hehe nejnej ég var svo ánægð með allt, þetta var æðislegt.. svo fór ég á djammið um kvöldið og fannst bara ekki vera eiginlega neinn með höfuðfat en mér var SAMA var samt með mína... En ég var orðin svo þreytt að ég gat ekki klárað djammið, já þið lásuð rétt ég var farin heim áður en staðurinn lokaði.. Greynilega orðin gömul.. or some..!:)

 

En já svo er maður bra byrjaður á fullu hjá pabba gamla og ég er bra alltaf að verða ánægðari og ánægðari með að hafa ákveðið (eða pabbi ákvað) að vera hjá honum enn eitt sumarið J

 

En já svo er nú gaman að segja frá því að ég og Guðlaug ákváðum að gera okkur góðan dag í laugardaginn 2 júní, við ákváðum að skoða fallega landið okkar...! Það var ræs kl. 8 átti að vera lagt af stað 8:15 ennnnnnnnn lögðum af stað 9.. ekki mér að kenna ég settist í bíllinn til Guddu buddu minnar með killer lúúkkk.. sagði valla hæ heldur ,,þú verðu sko að keyra hratt” J en þetta var í lagi við lögðum af stað keyrðum löglega alla leiðina *hóst* vorum svo komnar rétt fyrir 10 á Húsavík. Já þannig er nú það að ég er alltaf að benda útlendingum á að fara í hvalaskoðun og hef sjálf ekki einusinni farið svo ég ákvað að fara til að vita hvað ég er alltaf að segja útlendingunum endilega að gera. Svo að við skoppuðum um borð og manni var heilsað eins og útlendingi og ég bara ,,GÓÐAN DAGINN” og maðurinn bra nú íslendingar eins og það gerðist bra ALDREI haha en það var bra gaman svo þurftum við að hlusta á allt á ensku nema þegar hann var að sína okkur á spjöldum hvað við gætum séð þá segir maðurinn you might see a dolphine og leit á mig og Guðlaugu og sagði ,,höfrungur”!! mér hefur ekki liðið eins og ég væri svona vitlaus leeengi hehe! Og svo sáum við alveg heilann helling og kynnirinn um borð var nánast eins spenntur og við sem gerði ferðina enn betriJ

Eftir það var sest á kaffihús á Húsó setið aðeins í sólinni sötrað einn svala og farið í sjoppu og fengið sér burger,, hey það var laugardagurJJ svo ákváðum við að vera eins og enþá meiri túristar og fara á hvalasafnið :o) sem var æði líka ekkert smá flott og skal ég segja ykkur að það var mikið a f myndum tekið þar..

Síðan lá leiðin á Mývatn í náttúrulega baðið sem var bara notarlegt fyrir utan að það var smá kalt en það var nú í lagi við erum svo harðir íslendingar.. Jæja eftir það var fengið sér einn ís og á leiðinni sáum við alveg agalega flottann foss og ákváðum að vera eins og enn meiri túristar og stoppuðum hjá þessum flotta fossi GOÐAFOSSI =) bara ef þið hefðuð ekki vitað það.

Svo fórum við heim settum allar myndirnar í tölvu og ákváðum að grilla í tilefni hvað dagurinn var búinn að vera yndislegur og slappa af en bíddubíddu gasið kláraðist já við komust ekki strax í sæluna þannig það var brunað í esso og ég fer í sakleysinu og segi ,,geturu fyllt á gaskút”, meinaru ætlaru að kaupa nýjan gaskút, nejnej bara fylla á hann.. þú kaupir sko nýjan gaskút ókei WHAT THE F*** hvernig á ég að vita það seldu okkur bra gaskút.. hehehe

Jæja svo gátum við grillað og borðað mjög svo lúffengt svín og svo var farið í WII nintendo leikjatölvuna og ÓKEI er með STRENGI eftir það vá hvað hún tekur á.. Svo var sötrað og skellt sér nirður í bæ ég gat verið með Guðlaugu minni í 20 tíma straight grunaði gvend.. Nej elskan bra grín!! Þetta var æði dagur og ég get ekki beðið eftir næsta svona degi..

En þið eruð örugglega orðin þreytt a að lesa þetta hjá mér svo see ya sokkers...:o)

NOOO I lúfjú all

Elfan OUT

Ég býð mig fram í svona dag.. How about núna um helgina? Eða bara einhvern dag.. Fimmtudag, föstudag eða laugardag.. skiptir ekki? Mig langar að vera túristi.. Kemst ekki til útlanda núna svo Íslandið verður að duga í þetta skiptið!! Elfa, vertu túristi með mér.. plííís
#1
13. júní 2007 klukkan 13:04
Ókei Begga mín það er sko ekki vandamálið að vera túristi aftur :)
Mér fannst það ekkert smá gaman..
Ég get túristast um helgina, what do you wanna do??
#2
13. júní 2007 klukkan 13:21
Bara eitthvað.. Ég hugsa það á leiðinni norður.. Þú getur hugsað það í vinnunni, eða eftir vinnu.. ;)
#3
13. júní 2007 klukkan 13:24
 
Eyrún
Það er nú bara eins gott fyrir þig að halda þig hérna í bænum skækjan þín!!!!
Þú ert að fara að djamma með mér ??? eða hvað?? var það ekki svona nokkurnveginn ákveðið í gær eða? hummmmm??????
Annars bara rosa gott blogg elskan...;* og takk fyrir mig í gær þessi kjúllaréttur var æði:P er búin að gefa öllum uppskriftina hehe;)
#4
14. júní 2007 klukkan 20:34
bíddu bíddu, er ekkert minnst á heimkomu mína í þessu bloggi!!! nei nú er ég sár, hélt að það væri alveg hápunktur ársins að ég væri að koma heim;) heheh neinei segi svona. en til hamingju með nýja bloggð (er það ekki annars nýtt), það er ekkert verið að segja manni að þú sért með blogg.

en takk fyrir síðast og við heyrumst fljótlega elskan

fröken norge;)
#5
18. júní 2007 klukkan 17:57
 
Tinna
Hæ beigla... :) hehe til hamingju með útskriftina manni líður eins og maður sé orðin voða stór ;) já maður ætti kannski að taka ykkur sér til fyrirmyndar og skella sér á Húsó og skoða Hvalina eða Höfrungana hehehe..... ;)en annars gott að þú sért farin að blogga aftur nú get ég farið að stokkera þig! Heilsist þér Tinn Tinn ;)
#6
29. júní 2007 klukkan 19:22
Elfa bloggmaster!
#7
04. júlí 2007 klukkan 14:57

Skrifa athugasemd

Atburðarteljari

Könnun

Á að fara til útlanda í sumar?

Klukkan

Leit