Nauhh ţetta get ég.. TAKK Sara
Jæja gott fólk vegna pressu þá held ég að ég verði að blogga e-ð..
En allavega þá hefur nú e-ð gerst síðan ég bloggaði síðast...
Ég fór 2x í rafting í sumar í fyrraskiptið vorum við 13 og fórum í minni ánna sem var ekkert smá gamanJ og svo í seinna skiptið fórum við í stærri ánna en vorum bara 4 en samt sem áður sko ekkert síðra en fyrra.. Fórum með einhverju fyrirtæki að sunnan svo að það voru nánast eintómir karlmenn með okkur og viti menn við kjellurnar sem vorum 4 saman í bát duttum aldrei úr bátnum meðan hinir duttu og duttu útfyrir.. við stelpurnar vorum sko seigar... Eftir þá ferð höfðum við leigt okkur bústað og drukkum þar og djömmuðum fórum í pottinn sem var ALLTOF HEITUR en það var í lagi..
Ég ákvað að gefa sjálfri mér eitt ár í frí áður en ég færi í háskóla og vinna bara til að safna mér penning til að þurfa ekki að fara strax á námslán.. Það gengur þokkalega og hlakka ég ekkert smá til í að fara í háskóla..En málið er að ég virðist ekki alveg komst á niðurstöðu hvað ég vill nákvæmlega læra.. Hvað finnst ykkur að ég eigi að læra...
Ömmm ég er flutt í nýja íbúð ekki langt frá snægilinu samt.. en þetta urðu langir flutningar þrátt fyrir það.. Frá snægilinu heim til mömmu og pabba í langholtið í 3 vikur svo aftur hingað uppeftir í skessugilið J En það var BARA gott að koma og vera hjá mömmu og pabba smá.. Ég er alveg agalega ánægð með íbúðina og mér líður ekkert smá vel.. Við höfum það rosalega gott og erum í skýjunum yfir stærðinni J hehe
Svo erum við nú búin að fá okkur litla kisu.. eða hún er nú kannski ekki alveg eins lítil núna og þegar hún kom.. Hún var nú bara pínulítil þegar við fengum hana.. En núna er ég orðin alveg veik og vill endilega fá annan kött handa litlu Kíru til að leika við..
Svo fer nú að líða að afmælinu mínu.. Ég hef ekki hugmynd um hvað mig langar að gera í tilefni þess,, kallinn minn ætlar að gefa mér 50 þús svo mig langar bara að skella mér e-ð út til útlanda en ég veit ekki hvert og hver kemur með...:)
En já ég held að þetta sé orðið gott í bili nenni ekki að skrifa meira hehe en það verður vonandi ekki eins löng bið næstJJ
Svo hérna í lokin koma svo nokkrar myndir eftir sumarið svona sem ég tók snökkt saman:

Hérna er litla Kíra tiltölulega nýkomin og vildi bra fá mjólk! !

Svo er hún hérna orðin dáltið stærri... OHH SÆTASTI KÖTTUR

Hér er ein stúdentsmynd alveg ekki sú besta en hey ég nennti ekki að leyta svo að þið sjáið aðeins hversu glæsileg ég var .. hehe
Svo síðast en ekki síst nokkrar myndir af mér og Guðlaugu þegar við fórum í smá dagsferðarskemmtun..

Ég að reyna kenna Guðlaugu að maður á ekki að henda sorpi í sjóinn.. En hún skildi það náttla ekki .. kemur kannski næst…


Það var e-ð rosa mál þarna í einu herberginu var eitthvað dýr sem vildi bara borða okkur ! ! En við rétt sluppum.. Guðlaug var haulaus það sem eftir var ferðarinnar og ég handarlaus, en það er í lagi það hefði getað farið verrJJ

Við dáltið svalar á leið heim úr Lóninu J

En stoppuðum eitt loka stopp fyrst samt til að skoða fallega fossinn JJ
Jæja ég reyni svo að fara setja myndirnar inn allar sem ég er með..
Þanngað til næst I’m out….
Ef einhver veit um...
Endilega látið mig vita ef þið heyrið eikkað
Okioki lokablogg.....
En ókei verð að viðurkenna að ég er orðin alveg agalega spennt:o) enda búið að taka tíma að reyna fá góðan hóp og við erum milli 12-13 sem förum og það er mun meira en ég hélt nokkurtíma að það yrði...Húrra fyrir ykkur stelpur:)
En já Raftingið er kl. 13:30 og þær sem ætla á bíl, endilega komið og hittið mig og mitt fríða föruneyti eða mig og þær sem verða með mér í bíl bra í shell kl. ööööööö 12,10 er það ekki fínt og vera í samfloti??
Svo er það að við sem gistum skellum okkur á Bakkaflöt það kostar 700 kall að gista og innifalið í því er..... eldurnaraðstaða, gasgrill, getum borðað inni, heit og kalt vatn hehe og SNYRTING...
Síðast en ekki síst eru sturtur, heitir pottar og lítil sundlaug þarna og í þetta kostar einhvern 250 kell sem er ekkert nema gott mál...
Elfan sem er ofurglöð og ofurhress kveður
Lokatilkynning... hehe
þeir sem koma með í rafting eru:
ég,
Rakel Rut,
Jóna,
Helga Margrét(kannski +1 láta mig vita fljótt),
Bríet +3,
Inga +4,
Sigga (kannski +1, láta mig vita fljótt),
kannski elskulega systir mín
Jæja allir að kommenta og láta mig vita hvort þetta stenst ekki allt og hvort ég sé nokkuð að gleyma neinum....
Svo er það nú það hvernig er þetta með bílamál, er ekki skemmtilegast að reyna hafa bílana fulla ekki bra 2-3 í hverjum bíl til að gera stemmara??
Og svooo er ekki málið bra að hittast á litlu kaffistofu áður en laggt er í'ann og fá okkur að borða saman/eða eina pullu eða eikkað til að vera í samfloti??
Svo bra fólk sem ætlar að tjalda, grilla og djamma um kvöldið á Bakkaflöt eru??
Nenniði að commenta á þetta hvort sem þið eruð að koma í rafting eða bra á Bakkaflöt..
Þá fer þetta allt að koma og ég bíð mig ekki fram aftur að plana eikkað svona nema þetta heppnist alveg ógeðslega vel.. þetta er sko búið að taka tíma og þolinmæði:=)
En ég elska ykkur samt elsku stelpurnar mínar...
Kveðja Elfa stjórnarformaður
RAFTING
Þá er komið að því!! RAFTING LAUGARDAGINN 28.JÚLÍ.
DRULLIÐ YKKUR BRA TIL AÐ FÁ FRÍ OG ÞÁ ER MÁLIÐ KLÁRT.. Ég nenni ekki að ganga á eftir einum né neinum svo að þeir sem vilja með commenta hér eða bra heyra í mér... Þær vinkonur sem koma memmér endilega verið duglegar að reyna draga ykkar vinkonur með svo keyrum við eikkað og tjöldum gerum einn dag af sumrinu eftirminnilegan...
Elfa GRIBBA is out hehe
Já ţađ er sko mikiđ búiđ ađ gerast...:)
Jæja ég er að hugsa um að blogga eilítið J
En já hvar á ég að byrja, ú já útskriftin mín.. já ég hef sjaldan skemmt mér eins vel og laugardaginn 26. maí.. Mér hefur líka aldrei fundist eins gaman að vera með eitthvað fat á höfðinu :o)
En já systir mín kom til mín ásamt fjölskyldu hennar í tilefni dagsins. Sem var æðislegt!
Takk allir fyrir mig :o) þið vinir mínir hafið miklu betri smekk en mér gat grunað.. hehe nejnej ég var svo ánægð með allt, þetta var æðislegt.. svo fór ég á djammið um kvöldið og fannst bara ekki vera eiginlega neinn með höfuðfat en mér var SAMA var samt með mína... En ég var orðin svo þreytt að ég gat ekki klárað djammið, já þið lásuð rétt ég var farin heim áður en staðurinn lokaði.. Greynilega orðin gömul.. or some..!:)
En já svo er maður bra byrjaður á fullu hjá pabba gamla og ég er bra alltaf að verða ánægðari og ánægðari með að hafa ákveðið (eða pabbi ákvað) að vera hjá honum enn eitt sumarið J
En já svo er nú gaman að segja frá því að ég og Guðlaug ákváðum að gera okkur góðan dag í laugardaginn 2 júní, við ákváðum að skoða fallega landið okkar...! Það var ræs kl. 8 átti að vera lagt af stað 8:15 ennnnnnnnn lögðum af stað 9.. ekki mér að kenna ég settist í bíllinn til Guddu buddu minnar með killer lúúkkk.. sagði valla hæ heldur ,,þú verðu sko að keyra hratt” J en þetta var í lagi við lögðum af stað keyrðum löglega alla leiðina *hóst* vorum svo komnar rétt fyrir 10 á Húsavík. Já þannig er nú það að ég er alltaf að benda útlendingum á að fara í hvalaskoðun og hef sjálf ekki einusinni farið svo ég ákvað að fara til að vita hvað ég er alltaf að segja útlendingunum endilega að gera. Svo að við skoppuðum um borð og manni var heilsað eins og útlendingi og ég bara ,,GÓÐAN DAGINN” og maðurinn bra nú íslendingar eins og það gerðist bra ALDREI haha en það var bra gaman svo þurftum við að hlusta á allt á ensku nema þegar hann var að sína okkur á spjöldum hvað við gætum séð þá segir maðurinn you might see a dolphine og leit á mig og Guðlaugu og sagði ,,höfrungur”!! mér hefur ekki liðið eins og ég væri svona vitlaus leeengi hehe! Og svo sáum við alveg heilann helling og kynnirinn um borð var nánast eins spenntur og við sem gerði ferðina enn betriJ
Eftir það var sest á kaffihús á Húsó setið aðeins í sólinni sötrað einn svala og farið í sjoppu og fengið sér burger,, hey það var laugardagurJJ svo ákváðum við að vera eins og enþá meiri túristar og fara á hvalasafnið :o) sem var æði líka ekkert smá flott og skal ég segja ykkur að það var mikið a f myndum tekið þar..
Síðan lá leiðin á Mývatn í náttúrulega baðið sem var bara notarlegt fyrir utan að það var smá kalt en það var nú í lagi við erum svo harðir íslendingar.. Jæja eftir það var fengið sér einn ís og á leiðinni sáum við alveg agalega flottann foss og ákváðum að vera eins og enn meiri túristar og stoppuðum hjá þessum flotta fossi GOÐAFOSSI =) bara ef þið hefðuð ekki vitað það.
Svo fórum við heim settum allar myndirnar í tölvu og ákváðum að grilla í tilefni hvað dagurinn var búinn að vera yndislegur og slappa af en bíddubíddu gasið kláraðist já við komust ekki strax í sæluna þannig það var brunað í esso og ég fer í sakleysinu og segi ,,geturu fyllt á gaskút”, meinaru ætlaru að kaupa nýjan gaskút, nejnej bara fylla á hann.. þú kaupir sko nýjan gaskút ókei WHAT THE F*** hvernig á ég að vita það seldu okkur bra gaskút.. hehehe
Jæja svo gátum við grillað og borðað mjög svo lúffengt svín og svo var farið í WII nintendo leikjatölvuna og ÓKEI er með STRENGI eftir það vá hvað hún tekur á.. Svo var sötrað og skellt sér nirður í bæ ég gat verið með Guðlaugu minni í 20 tíma straight grunaði gvend.. Nej elskan bra grín!! Þetta var æði dagur og ég get ekki beðið eftir næsta svona degi..
En þið eruð örugglega orðin þreytt a að lesa þetta hjá mér svo see ya sokkers...:o)
NOOO I lúfjú all
Elfan OUT
Allt er ţegar ţrennt er... Tekst ţađ núna.. AĐ BLOGGA
Jæja þá er svefnleysi en að gera vart við sig svo svona enn eina ferðina svo að ég ákvað að skrifa smá..
Jæja þetta er algjör lokatilraun til að vera með blogg og það fylgir því eitt skilyrði að ég verði með það og það er það að þið þurfið að vera dugleg að commenta J
En já það er nú ekki mikið að frétta af mér þessa dagana nema kannski það að STÚDENTINN ER Á LAUGARDAGINN já það er komið að því að ég verði stúdent :o) já ég trúi þessu varla sjálf.. er mikið að velta því fyrir mér hvað maður á að gera næst er mikið að hugsa um að fara í háskóla eitthvað sem tengist ferðamálum.. en hver veit kannski það verði komið eitthvað annað eftir 2 vikur leyfi ykkur að fylgjast vel með því hvað poppar í hausinn á mér.. En ég er að hugsa um að fara ekki í háskóla fyrr en eftir ár. Og fyrir ykkur sem ekki vitið þá er stefnan tekinn á að skella sér kannski suður eða út í skóla og elskan mín búin að segja að hann sé til í að koma með ef ég fer.. Hann er bara yndi :o)
Ég er bara að vinna hjá pabba gamla svona eins og vanalega á sumrin þetta kemur ykkur örugglega ekkert á óvart ;) Og það er bara alltaf jafn fínt að spjalla við útlendingana þeir eru alltaf svo hressir ;)
En mér langar svo að plana einhverja ótrúlega skemmtilega útileiguferð í sumar.. Endilega ef einhver er til í að gera eitthvað þannig skemmtilegt þá skulum við gera það, maður er búin að sóa alltof mörgum sumrum í að gera ekki neitt og það gengur ekki lengur.. Sé svo eftir því að hafa ekki gert meira áður en allir fluttu í burtu frá mér.. JÁ SKAMM ÞIÐ sem fóruð suður, til Noregs og Danmerkur.. þarf eikkað að taka í lurginn á ykkur..
En annars þá elska ég ykkir.. hehe
Elfan ykkar sem er á lokatilraun til að blogga...
